30. apríl 2006

Grillveður, hvað?

Grillað í kvöldmat. Jú, en ekki í Namibíu heldur á Akranesi!
Rjómablíða, að mér skilst, á meðan hér var svaðalegt þrumuveður með
tilheyrandi úrkomu og eldingum. Þ.a. ekki þýddi að láta sig dreyma um
að kveikja upp eld utandyra, ó, nei. Berast þá þær fréttir að frúin á
Stillholtinu sé að baksa við grillkol og -vökva, og gekk víst bara vel.

Misskipt er veraldargæðum.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já þetta gekk vel nema hvað kjötið varð full dökkt og stökkt að utan, en annars alveg yndislega gott á bragðið.

Kveðja úr rjómablíðunni,

Nafnlaus sagði...

Namm namm ummmmm grillmatur... Klikkar aldrei

Nafnlaus sagði...

Biddu bara þangað til að "VESTURBÆINGARNIR"mæta til að grilla,þá rignir fyrst hressilega á AKRANESI,bæði að utan sem innan

Bara alltaf í Amsterdam

Í fyrradag flaug ég til Amsterdam. Ég var reyndar á leiðinni til Úganda, en til að komast þangað er ágætt að nota Schiphol flugvöllinn sem s...