Við feðgarnir fórum í Smárabíó fyrr í dag. Frumsýningardagur á Skoppu og Skrítlu. Keyptum miða í gær á midi.is til að vera nú alveg öruggir að fá sæti. Hefðum nú ekki þurft að hafa áhyggjur því frekar fáir voru í bíó. Þó hittum við frænku okkar frá Vatnsskarðshólum, hana Unni og fjölskyldu hennar. Langt er síðan ég hef séð hana og því var þetta skemmtileg tilviljun.
Rúnar Atli skemmti sér vel á myndinni og ekki skemmdi fyrir að hitta Skoppu sjálfa.
26. desember 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Bara alltaf í Amsterdam
Í fyrradag flaug ég til Amsterdam. Ég var reyndar á leiðinni til Úganda, en til að komast þangað er ágætt að nota Schiphol flugvöllinn sem s...
-
Áðan skruppum við í göngutúr um nágrennið okkar. Ég var búinn að stúdera næstu götur svolítið á kortavef hr. Gúguls og var kominn með áætlun...
-
Um daginn vorum við á ferð í Himbalandi ásamt Ella og Allý og krakkagrislingunum þeirra. Athygli okkar vakti hversu mikið var af litskrúðugu...
-
Haldiði ekki að það séu komnir fyrstu gestir til Mapútó! Já, 20 dögum eða svo eftir að við mætum á svæðið, þá eru komnir gestir. Geri aðrir ...
2 ummæli:
Ég reikna með að þú hafir skemmt þér alveg konunglega...
Villi hefur ekki leiðst mikið!
Skrifa ummæli