12. nóvember 2006

Hreinlæti

Rúnar Atli fór í bað áðan. Þykja nú ekki stórar fréttir, því það
gerir hann flesta daga. En núna var að renna í baðið og hann að
striplast á baðherbergisgólfinu, þegar ég þarf að hlaupa eftir
einhverju. Kem til baka og heyri að það rennur vatn í klósettkassann.
Minn hafði sem sagt sturtað niður.

Af hverju sturtaðirðu?, spyr ég.

Fávitaleg spurning, greinilega, því hann svarar: pissa.

Nú varstu að pissa? spyr ég.

Jah, segir hann.

Og hvar pissaðirðu?, spyr ég.

Hann fer með mig að hliðinni á klósettinu og sýnir mér hróðugur poll
sem er þar. Ekta karlmaður að hitta ekki oní.

En, hann sturtaði. Og setan var niðri.

Alveg eins og á að gera þegar búið er að pissa.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það eru sko líka þrír sannir karlmenn á mínu heimili sem allir kunna að pissa útfyrir og gera það reglulega :-).

Nafnlaus sagði...

Hehehehehe hann er efnilegur þessi

Bara alltaf í Amsterdam

Í fyrradag flaug ég til Amsterdam. Ég var reyndar á leiðinni til Úganda, en til að komast þangað er ágætt að nota Schiphol flugvöllinn sem s...