Tinna Rut að heiman í dag. Í sjálfu sér er það ekki nýtt. Hins vegar er tilefnið kannski annað en gengur og gerist.
Lærdómur.
Já, svei mér þá. Þrjár stelpur, þ.m.t. Tinna Rut hittust í morgun um hálfellefuleytið heima hjá einni þeirra og markmiðið er að fara yfir allar spurningar í kennslubókunum og verkefnum! Ekki slæmt helgarverkefni það.
Tinna Rut mætti með kók og snakk handa liðinu og hinar komu með birgðir af einhverju öðru lífsnauðsynlegu.
Batnandi fólki er víst best að lifa segir einhvers staðar.
7. júní 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Bara alltaf í Amsterdam
Í fyrradag flaug ég til Amsterdam. Ég var reyndar á leiðinni til Úganda, en til að komast þangað er ágætt að nota Schiphol flugvöllinn sem s...
-
Rúnar Atli fékk að fara eftir skóla heim til bekkjarbróður síns, Liams. Liam og Rúnar Atli eru virkilega góðir vinir og alltaf mikill spenni...
-
Á morgnana þegar ég er búinn að skutla Tinnu Rut og Rúnar Atla í skóla og leikskóla þá liggur leið mín framhjá stórri kirkju. Hún heitir í l...
-
Á morgun er merkisdagur. Svarti Dæinn hennar Gullu verður eins árs. Og það á föstudegi. Hún Gulla sér ekki sólina fyrir kagganum sínum og þv...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli