1. júní 2008

Verslunarleiðangur

Nokkuð er um liðið síðan ég keypti mér föt. Ekki er það að mér finnist leiðinlegt að vera í nýjum fötum. Nei, þvert á móti finnst mér yfirleitt gaman að vera í fötum sem nýbúið er að versla. Hins vegar finnst mér hundleiðinlegt að flækjast í fatabúðum, og reyna að meta hvort einhver flík sem hangir á herðatré eða liggur samanbrotin í hillu passi mér. Svo er það þetta með hvaða litir passa saman og hvaða litir ekki.

Í nokkrar vikur er ég búinn að vera að telja í mig kjark til að fara út og kaupa mér einar eða tvennar buxur, og kannski einhverjar skyrtur. Í morgun var svo haldið af stað. Sem betur fer fékkst Tinna Rut til að koma með. Reyndar á fölskum forsendum að nokkru leyti, en ætli hún skrifi ekki færslu um það sjálf.

Ég er síðan í einni af fínni búðum bæjarins og kominn með einar fínar gallabuxur á arminn, ekki kúrekastíll heldur eitthvað nýmóðins - ítalskt merki, og að skoða aðrar. Álpast til að spurja afgreiðsludömuna hver síddin á buxunum sé. „34 tommur,“ hélt hún - „æ,“ sagði ég, „ég þarf 32 tommur,“ og hengdi buxurnar aftur upp.

Fór svo að máta þessar ítölsku. Blótaði í sand og ösku (í hljóði þar sem Rúnar Atli var inni í mátunarklefanum) þegar ég sá að buxurnar voru alltof síðar. Datt þó í hug að fara í skóna líka, en þótti þetta ekki alveg í lagi. Fékk þó þann hugstorm að kalla í dóttur mína og spurja hana álits.

„Pabbi, þetta á að vera svona,“ sagði hún, og tókst glettilega vel að fela þreytuna yfir þessari vankunnáttu karls föður síns. „Nú?“ sagði ég, „ertu alveg viss?“ Þetta var nú eiginlega ekki svaravert.

En aðra hugljómun fékk ég og sendi telpuna eftir buxunum sem ég hafði skömmu fyrr hengt upp (34 tommur í stað 32ja), og eftir að máta og fá staðfestingu dótturinnar að ég liti ekki út eins og alltof stuttur lúði, heldur væri þetta hátíska, þá lét ég slag standa og keypti báðar buxurnar.

Rúnar Atli brá sér svo í hlutverk ljósmyndara þegar heim var komið og smellti af mynd af fæti mínum.


© Rúnar Atli Wiium



Svalur er ég víst orðinn, en dæmi hver sem vill.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvað voru buxurnar margar tommur um miðjuna?
Það er það sem allir vilja vita.
Doddi

vennesla sagði...

Segi það sama og Doddi, við viljum ekki vita hvaða sídd á buxum þú notar Villi minn, heldur er það miðjumálið sem skiptir öllu máli:-)

Koss og knús frá karfanum í Vennesla

Nafnlaus sagði...

Ferlega eruð þið leiðinleg, segi það og skrifa og hananú.

kv,
Gulla,

Nafnlaus sagði...

Oh gleymdi að taka fram (þarf þess náttúrlega ekki - en samt) að þú ert meiriháttar kúl elskan; he he

kv,
Gulla (þessi sem er gift aðalgæjanum í bænum)

Litið blogg úr villta vestrinu sagði...

Velkomin til nútímans í buxnastil. Þetta er mjög flott og hárrétt sídd á almennilegum buxum.....

Nafnlaus sagði...

Hvað er að? Buxurnar virka flottar og fara honum alveg örugglega vel.
Elli

Bara alltaf í Amsterdam

Í fyrradag flaug ég til Amsterdam. Ég var reyndar á leiðinni til Úganda, en til að komast þangað er ágætt að nota Schiphol flugvöllinn sem s...