21. júlí 2007

Líkamsræktartröllið

Hvurslags spurningar eru þetta eiginlega frá mínum kæru systkinum?

Hætta í ræktinni? Ó, nei, ó nei. Smáhlé þessa vikuna en svo verður farið af stað á nýjan leik. Nú verður bara tekið tillit til þátta eins og tognaðra bakvöðva...

Nokkur kíló hafa þegar farið svo maður er kominn á skrið.

Þegar Vilhjálmur kemst á skrið þarf töluvert til að stöðva hann...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvað átti maður að halda? Langur pisill um líkamleg vandræði og óheilsufar þar sem verið var að benda á að hluti skýringarinnar hafi verið of mikill tími á hlaupabrettinu og of margar magaæfingar. Gott að heyra að menn ætli ekki að leggja hlýrabolinn á hilluna.

Nafnlaus sagði...

Go Villi ég hef fulla trú á þér íha :-D

Bara alltaf í Amsterdam

Í fyrradag flaug ég til Amsterdam. Ég var reyndar á leiðinni til Úganda, en til að komast þangað er ágætt að nota Schiphol flugvöllinn sem s...