11. apríl 2007

Slúðrið í Windhoek

Namibía er ekki öðrumvísi er aðrir staðir. Fólki finnst gaman að lesa um annað fólk.

Í blöðunum hér eru síður með fólki í fréttum; myndir teknar á mannamótum, afmælum, partíum o.s.frv.

Þó á maður ekki alveg von á því að sjá fjölskyldumeðlimi á þessum síðum, eða hvað?

Sú var þó reyndar raunin í síðustu viku eins og hér má sjá:



Í lauslegri þýðingu er hér sagt frá turtildúfunum Rashid nokkrum Muhamedrahimov og Tinnu Wiium sem eru hér á góðri stundu. Þó ekki í Grundarfirði.

Rashid þessi er víst rússneskur og segja sögur að hann sé tengdur mafíósum síns heimalands. Er það gott? Veit það bara ekki.

En fyrirspurnum skal beint til hennar Tinnu minnar - tölvupóstfang: springbok hjá strik.is

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

OMG nú er ég bara kjaftstopp

Nafnlaus sagði...

Hvað er Tinna bara orðin fræg

Hvað er þetta með fjölskylduna, allir í blöðunum þessa daganna.

Kveðja Hulda

Nafnlaus sagði...

He, he, he...

Sigga getur án efa reddað þér Íslensk-Rússnesk orðabók á góðum díl, hún er með sambönd.

Ekki samt mafíutengd.

Nafnlaus sagði...

Er ekki hægt að nota þetta sér í hag??? Er Tinna þá ekki með óvenju góð sambönd til að redda... tjah t.d. 40 feta gám af stolichnaya vodka???

Bara alltaf í Amsterdam

Í fyrradag flaug ég til Amsterdam. Ég var reyndar á leiðinni til Úganda, en til að komast þangað er ágætt að nota Schiphol flugvöllinn sem s...