
Sitt virðist hverjum sýnast með kaup á knattspyrnugalla á litla guttann. En kannski er komin lausn á því máli. Ég dró nefnilega fram körfuspjald, sem keypt var fyrir Tinnu Rut á sínum tíma, og setti það í „rétta“ hæð. Eins og sést, þá vantar lítið á tilþrifin og eru troðslur aðalatriðið að virðist í þessum leik.
Ég kannski leita bara eftir NBA galla handa honum. Verst þó að velja liðið eftir að Vancouver Grizzlies dóu drottni sínum.
3 ummæli:
Hann er greinilega upprennandi íþróttastjarna. Svo þarf að kenna honum að spila blak líka hehe :)
Þristurinn hjá Sixers, ekki spurning
Held að Pistons sé málið, þeir eru að gera góða hluti.
Skrifa ummæli