28. febrúar 2008

Smíðar

Rúnar Atli hefur stækkað nokkuð á þessum tíma sem við höfum búið í Namibíu. Þrátt fyrir það hefur hann alltaf verið í sama rúminu. Rimlarúm, ja, í raun bara rúm fyrir lítil börn. Hann er sko ekkert lítið barn lengur.

Fyrir einhverju síðan fékk ég þá flugu í höfuðið að smíða rúm handa honum. Ég eyddi nokkrum kvöldum á veraldarvefnum og fann loks teikningu af fínu rúmi og fjárfesti í leiðbeiningunum. Síðan lá leiðin í timburverslun og efnið keypt. Frá því þetta var er liðinn nokkur tími. Hmm, ég myndi ekki mæla hann í dögum og ekki heldur vikum. Ætli
séu ekki einhverjir mánuðir síðan verkið hófst.

En nýlega fór allt í einu að komast skriður á málin. Höfum við Rúnar Atli eytt góðum hluta kvölda í þessum mánuði í bílskúrnum að dunda okkur við þetta. Hann var nú ekki alltof sáttur þegar einhver hávaðastarfsemi var í gangi. Þá vildi hann frekar leika sér í dótinu sínu. En þegar kom að málingarvinnu, þá var hann til í að hjálpa.

Tinna Rut átti það stundum til að kíkja á okkur, en eins og sést þótti henni ekkert sérstaklega spennandi að horfa á okkur.


Jafnskemmtilegt og horfa á málningu þorna, gæti hún verið að hugsa.

En svo fékk hún myndavélina í hendur og það fannst henni gaman. Hér erum við feðgarnir á fullu í málningarvinnunni. Höfum engan tíma til að líta upp.


Syninum fannst málingarvinnu eitthvað það skemmtilegast sem hann hefur gert og náði hann að mála stóran hluta af afskurðinum. Bar hann sig fagmannlega við þetta. Reyndar tókst honum í eitt skipti að sulla slatta af málningu yfir fótinn á sér, en það kvöldið var hann berfættur. Var hann eins og með eldrautt naglalakk í nokkra daga þangað til ég sá aumur á honum og þvoði honum upp úr terpentínu.


Svo skarst auðvitað Tinna Rut í leikinn...

En í dag var svo rúmið endanlega sett saman. Í dag kom nefnilega sérsniðna dýnan í hús og þá var jú gaman. Hér sést Rúnar Atli í nýja fína rúminu.


Já, bílarúm var það, hvorki meira né minna. Ég er ósköp ánægður með útkomuna. Alltaf gaman þegar tekst að gera eitthvað sem vekur ánægju og gleði hjá börnunum.

Sængurfötin eru síðan Leiftur McQueen og Krókur - hvað annað?


Ekki var mikið mál að koma drengnum í rúmið í kvöld. Vonandi sefur hann vel fyrstu nóttina.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vaaaaaaá, massa flott smíði hjá þér Villi, og auðvitað Rúnari líka. Veit ekki hvort ég þori að sýna Loga þetta það gætu farið einhverjar hugmyndir í gang hjá honum. Spurning um að vera búin að kaupa efni í svona þegar þú kemur næst til Íslands hmmm.

Nafnlaus sagði...

VÁÁÁÁÁÁÁ... Þetta er ekkert smá flott smiði hjá þér Villi og Rúnari líka að sjálfsögðu... Alveg geggað flott

vennesla sagði...

Þetta er nú bara meistarasmíði hjá þér Villi minn, eða ykkur feðgunum. Aroni fannst þetta sko vera flottasta rúm sem hann hefur séð:-)
koss og knús frá okkur í Norge

Bara alltaf í Amsterdam

Í fyrradag flaug ég til Amsterdam. Ég var reyndar á leiðinni til Úganda, en til að komast þangað er ágætt að nota Schiphol flugvöllinn sem s...