19. janúar 2007

Sumarfrí

Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Við hér erum farin að undarbúa
sumarfríið. Auðvitað er sumar hér núna, en við stefnum á íslenskt
sumar. Ja, vor í það minnsta. Keyptum flugmiða í dag með BA frá
London til Keflavíkur og til baka. Eigum líka miða með Air Namibía
milli Windhoek og London. Heim verður komið 6. maí og farið til baka
30. sama mánaðar. Í þetta fer rétt rúmur helmingurinn af
orlofsdögunum mínum.

Mér skilst það sé eitthvað merkilegt við 26. maí þetta árið.

Sjáumst.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Við Dagmar erum mjög spenntar að fá ykkur heim í vor og teljum dagana, ja byrjum á því eftir helgi :-)

Bara alltaf í Amsterdam

Í fyrradag flaug ég til Amsterdam. Ég var reyndar á leiðinni til Úganda, en til að komast þangað er ágætt að nota Schiphol flugvöllinn sem s...