10. janúar 2007

Heitt...

Úff, hitinn hér í Windhoek liggur nálægt fjörutíu stigum þessa
dagana. Enda er alveg vonlaust að ætla að vera eitthvað úti við.
Maður bara lamast út af hita. Eina ráðið er að leggjast fyrir framan
viftur og loftkælingar, og svo stinga tánum í sundlaugina. Allir
vonast eftir rigningu, en hún ætlar að láta bíða eftir sér.

Heitt...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég myndi alveg þiggja nokkrar plúsgráður hérna yfir.

Nafnlaus sagði...

Ég er alveg sammála Davíð...... Sem dæmi þá er búið að vera ca 6-9 stiga frost hjá mér

KALT !!!!!!!!!!

Bara alltaf í Amsterdam

Í fyrradag flaug ég til Amsterdam. Ég var reyndar á leiðinni til Úganda, en til að komast þangað er ágætt að nota Schiphol flugvöllinn sem s...