Buðum fólki heim á laugardagskvöldið. Auðvitað var grillað, hvað annað? Grillið hefur varla fengið tíma til að kólna frá því það var keypt. Toppurinn var þó ostakaka sem ég eyddi góðum hluta morgunsins í að útbúa. Tókst alveg glettilega vel, þótt ég segi sjálfur frá. Grillaði svo skötusel eftir einhverri uppskrift úr Gestgjafanum. Tandori kjúkling líka og eitthvað fleira.
Svo var setið við nýja borðið frameftir kvöldi og kjaftað og svoleiðis. Nýju garðhúsgögnin reyndust vel, ekki síst vínvagninn...
Setti gemsann svo á hljótt áður en farið var í rúmið. Fékk nefnilega einhver sms sem bentu til þess að ákveðnir „vinir“ væru að skemmta sér í sumarbústað einhvers staðar á Fróni. Ég er af reynslu farinn að vita hvað klukkan slær, enda sá ég í morgun að einhver hafði hringt kortér fyrir eitt um morguninn að namibískum tíma.
Þá var ég löngu sofnaður.
Og svaf vært.
24. júlí 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Bara alltaf í Amsterdam
Í fyrradag flaug ég til Amsterdam. Ég var reyndar á leiðinni til Úganda, en til að komast þangað er ágætt að nota Schiphol flugvöllinn sem s...
-
Áðan skruppum við í göngutúr um nágrennið okkar. Ég var búinn að stúdera næstu götur svolítið á kortavef hr. Gúguls og var kominn með áætlun...
-
Rúnar Atli fékk að fara eftir skóla heim til bekkjarbróður síns, Liams. Liam og Rúnar Atli eru virkilega góðir vinir og alltaf mikill spenni...
-
Þá er komið að því að ræða viðhaldið. Nei, nei, hvað er að ykkur? Skammist ykkar. Auðvitað er allt er í fínu hjá okkur Gullu. Ja, a.m.k....
3 ummæli:
Hvað er að frétta af myndinni sem sýnir grillmeistarann með ennisljósið. Verð að sjá eina þannig ;)
Er enn að bíða eftir myndinni !!!! Það væri afar gott ef fleiri lesendur þessara síðu gætuð tekið undir þessa fyrirspurn hjá mér ;)
Smá svona hópþrýsting !!!
Hey sorry, en þetta matarboð er farið að verða svolítið þreytt...
Skrifa ummæli