Jæja, alltaf bætist í reynslubankann. Dagmar Ýr stundar förðunarfræði þessa dagana og tókst á undraverðan hátt að fá föður sinn til að vera fyrirsæta í eitt kvöld - fyrirsæta í dragförðun!
Ég held að ágætlega hafi tekist til:
|
Hér er komin þessi glæsilega blondína, seiðandi augnaráð og lokkandi varir. |
|
Svo er komin ein „Pink Lady“ úr Grease - Rizzo eat your heart out... |
|
|
Litli fingurinn er alltaf svooo sexí... |
|
„Au naturel“ hárgreiðsla dregur ekki úr þokkanum. Piltar, takið eftir giftingarhringnum... sorrí... |
Algjörlega ný lífsreynsla. Skemmtileg.
Á ekki bara að panta strax Gleðigönguvagn fyrir næsta ár?
Engin ummæli:
Skrifa ummæli